Um SSV
Skrifstofa SSV
Fundargerðir
Ályktanir aðalfundar
Stjórn og nefndir SSV
Heilbrigðisnefnd Vesturlands
Sorpurðun Vesturlands
Fréttir
English
Síma- og netfangaskrá starfsmanna
Um þróun og ráðgjöf
Viðveruplan atvinnuráðgjafa
Stoðkerfi atvinnulífsins
Lán og styrkir
Útgáfa




Akraneskaupstaður
Borgarbyggð
Dalabyggð
Eyja- og Miklaholtshreppur
Grundarfjarðarbær
Helgafellssveit
Hvalfjarðarsveit
Skorradalshreppur
Snæfellsbær
Stykkishólmsbær

 

Styrkir og lán til atvinnuþróunar á Vesturlandi

 

Vaxtarsamningur Vesturlands

Vaxtarsamningur Vesturlands veitir styrkjum til samstarfsverkefna (klasa) á Vesturlandi. 

 

Menningarráð Vesturlands

Menningarráð Vesturlands veitir styrki til ýmis konar nýsköpunarverkefna á sviði lista og menningar.

 

Fjárfestingarfélagið Vesturland

Markmið félagsins er að taka þátt í stofnun og starfsemi annarra félaga sem rekin eru á grundvelli arðsemissjónarmiða, fela í sér nýmæli í atvinnulífi og eru mikilvægur þáttur í uppbyggingu á starfssvæði félagsins.  Félagið mun fjárfesta í hlutabréfum slíkra félaga eða í skuldabréfum, sem breyta má í hluti í þeim. 

 

Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands er hægt að sækja um ýmsa styrki:

 

Fyrir frumkvöðla: Styrkur allt að 600 þús. til að þróa viðskiptahugmynd. 

 

Fyrir nýsköpun í starfandi fyrirtækjum: Styrkur allt að 3 millj. til að þróa nýja vöru eða þjónustu í starfandi fyrirtækjum. 

 

Fyrir rekstrarráðgjöf í starfandi fyrirtækjum: Styrkur allt að 600 þús. til að endurskipuleggja rekstur minni fyrirtækja.

 

Fyrir klasa: Styrkur allt að 3 millj. til þróunar klasasamstarfs 5 eða fleiri aðila.

 

 

Framleiðnisjóður landbúnaðarins

Framleiðnisjóður landbúnaðarins hefur leitast við að styðja við frumkvæði og vænleg viðfangsefni og svara eftirspurn án þess að halda fram einu umfram annað. Í seinni tíð hefur stuðningur sjóðsins í vaxandi mæli beinst að þróunar- og rannsóknarverkefnum sem tengjast atvinnuuppbyggingu í dreifbýli.

 

Framleiðnisjóður starfar ekki sem lánasjóður nema að litlu leyti en hefur stutt myndarlega við ýmsar búháttabreytingar á lögbýlum.  Styrkir til lögbýla nema þó aldrei meira en 30% af framkvæmdakostnaði og er hámarks styrkveiting kr. 2 milljónir. Skal umsækjandi vera með lögheimili á lögbýli.

 

Vaxtarsprotar er samstarfsverkefni Framleiðnisjóðs og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands ætlað til stuðnings við nýsköpun í sveitum.
  

Atvinnumál kvenna

Megin­mark­mið sjóðsins er að styðja konur til ný­sköpunar í at­vinnu­lífi með því að veita styrki til nýsköpunarverkefna. Styrkir eru á bilinu 300. þús til 2 mill. en að hámarki 50% af kostnaði.

 

 

Byggðastofnun

Hjá Byggðastofnun er hægt að sækja bæði um lán, styrki og hlutafé til atvinnuuppbyggingar á landsbyggðinni. Veitir hún styrki til margs konar nýjunga í atvinnulífi landsbyggðarinnar og lán vegna fjárfestinga þar.  Hlutverk stofnunarinnar er að stuðla að þjóðfélagslega hagkvæmri þróun byggðar í landinu. Á heimasíðu hennar er að finna gott yfirlit og vísanir á vefsíður bæði innlendra og norrænna sjóða sem veita fjármagni til atvinnuþróunar.

 

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins tekur einnig þátt í fjármögnun fyrirtækja sem eru í algerri nýsköpun í framleiðslu sinni. Um tvenns konar fjármögnun er að ræða, áhættulán og hlutafé.

 

Nýsköpunarsjóður námsmanna.

Nýsköpunarsjóður námsmanna styrkir fyrirtæki til að ráða til sín námsmenn tímabundið til afmarkaðra verkefa á ýmsum sérsviðum, s.s. á sviði vöruþróunar. 

  

Ferðamálastofa

Ferðamálastofa Íslands veitir styrki til úrbóta á ferðamannastöðum.

 

AVS

AVS (Aukið verðmæti sjávarfangs) er sjóður á vegum sjávarútvegsráðuneytis sem hefur að markmiði að styrkja verkefni sem ætlað er að auka verðmæti sjávarfangs.

 

Menntaáætlun ESB

Um er að ræða styrki til þróunar- og samstarfsverkefna leik-, grunn-, framhalds- og háskóla, auk endurmenntunar (Gruntvig, Erasmus, Comenius, Leonardo). Fjölmargir íslenskir skólar hafa fengið styrki.

 

 

Ýmsir styrkir

Á þessari síðu Nýsköpunarmiðstöðvar er listi yfir ýmsa styrktaraðila. Sumir þeir sömu og nefndir eru hér að ofan.

 

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnesi
Sími: 433-2310     Fax: 437-1494     ssv@ssv.is