Um SSV
Skrifstofa SSV
Fundargerðir
Ályktanir aðalfundar
Stjórn og nefndir SSV
Heilbrigðisnefnd Vesturlands
Sorpurðun Vesturlands
Fréttir
English
Síma- og netfangaskrá starfsmanna
Um þróun og ráðgjöf
Viðveruplan atvinnuráðgjafa
Stoðkerfi atvinnulífsins
Lán og styrkir
Útgáfa




Akraneskaupstaður
Borgarbyggð
Dalabyggð
Eyja- og Miklaholtshreppur
Grundarfjarðarbær
Helgafellssveit
Hvalfjarðarsveit
Skorradalshreppur
Snæfellsbær
Stykkishólmsbær

SSV - þróun og ráðgjöf.

 

SSV - þróun og ráðgjöf er ráðgjafar og þróunarsvið Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.  Það er í eigu sveitarfélaga á Vesturlandi sem ná frá Hvalfjarðarbotni til Gilsfjarðarbotns.

 

Hlutverk.

 

Verkefni felast m.a. í að vera einstaklingum, fyrirtækjum og sveitarstjórnum til aðstoðar á sviði atvinnumála. Verkefni þróunar- og ráðgjafadeildar SSV á sviði aðstoðar við ofangreinda aðila geta verið margvísleg.

  • Aðstoð við að greina vandamál
  • Leiðbeiningar um hvar er hægt að fá aðstoð, bæði fjárhagslega og tæknilega frá stoðkerfum atvinnulífsins.
  • Aðstoð við gerð umsókna til sjóða.
  • Aðstoð við gerð rekstrar- og kostnaðaráætlana.
  • Aðstoð við markaðsmál
  • Upplýsingagjöf, fundir o.fl.

 

SSV - þróun- og ráðgjöf, aðstoðar einstaklinga til sjálfshjálpar.  Það þýðir að nauðsynlegt er að þeir sem eftir aðstoð leita komi einnig til með að vinna að framgangi hugmynda sinna.

 

Markmið

 

Meginmarkmið SSV - þróunar og ráðgjafar, er að taka þátt í að efla atvinnulíf í landshlutanum með beinum og óbeinum hætti. 

Rekstrarráðgjöf og hagkvæmnisúttektir.

  • Upplýsingaöflun og upplýsingamiðlun.
  • Greining á byggða- og atvinnumálum.
  • Hafa frumkvæði að atvinnusköpun.
  • Aðstoða við fjármögnun.  (Lán og styrkir)
  • Efla almenna búsetu og búsetuskilyrði á svæðinu.
  • Kynningarstarf á svæðinu.
  • Námskeiðahald.

 

Gjaldtaka

 

Viðmiðunarreglur eru að hvert verkefni fái u.þ.b. tveggja daga vinnu gjaldfría.  Fyrir vinnu umfram það er tekið tímagjald.  Regla þessi er byggð á samkeppnissjónarmiðum.

 

Trúnaður.

 

Eðli málsins samkvæmt heitir SSV skjólstæðingum sínum fullum trúnaði.  Hægt er að bera upp trúnaðarmál við atvinnuráðgjafa og treysta því að hugmynd eða mál verði ekki borin á torg.

 

Verið velkomin

 

Ef þú hefur áhuga á að nýta þjónustu SSV, þróunar og ráðgjafadeildar, þá endilega hafðu samband og við bókum tíma fyrir þig.

 

Viðverutímar.

 

Alltaf er hægt að hafa samband við skrifstofu SSV í síma 433-2310.  Auk þess eru ráðgjafar með viðverutíma á Akranesi, Snæfellsbæ, Grundarfirði og Stykkishólmi.  Nánari upplýsingar veita skrifstofur sveitarfélaganna á viðkomandi stöðum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnesi
Sími: 433-2310     Fax: 437-1494     ssv@ssv.is