Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi.
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa verið starfrækt frá árinu 1969. Árið 1972 kom Guðjón Ingvi Stefánsson til starfa hjá samtökunum.
Árið 1973 var Samgöngunefnd SSV stofnuð og hefur starfað óslitið frá þeim tíma.
Markmið SSV er m.a. að:
- vinna að hagsmunum sveitarfélaganna á Vesturlandi, einkum í atvinnu-, efnahags-, mennta-, skipulags-, samgöngu- og félagsmálum.
- efla samstarf sveitarfélaganna og auka kynningu sveitarstjórnarmanna.
- styrkja þjóðfélagslega aðstöðu landshlutans.
Samtökunum er ætlað að starfa í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga eftir því sem við verður komið.
SSV rekur ráðgjafa- og þróunardeild.
Samkvæmt samningi milli SSV og Byggðastofnunar rekur SSV ráðgjafa- og þróunardeild. Gildandi er samningur sem hefur þau markmið að:
- stuðla að jákvæðri þróun atvinnulífs á starfssvæði félagsins.
- bæta almenn búsetuskilyrði á starfssvæði félagsins.
- byggja upp og miðla þekkingu, reynslu og hæfni á sviði atvinnu- og byggðaþróunar milli Byggðastofnunar og SSV.
- Byggðastofnun og aðrar stofnanir í stoðkerfi atvinnuþróunar hafi sem öflugastan samstarfsaðila á starfssvæði félagsins.
Forsendur.
Forsendur samningsins eru "Lög um Byggðastofnun 199 nr. 106" og "Reglugerð um Byggðastofnun 16. maí 2000"
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
Bjarnarbraut 8
310 Borgarnesi
sími: 433 2310
fax: 437 1494
tp: ssv@ssv.is
Kt.: 610673-0239
Framkvæmdastjóri er Hrefna Bryndís Jónsdóttir hrefna@ssv.is