Nokkur svipuð verkefni eru í gangi og sum hver hafa fastan sess. Sum þeirra einskorðast við ákveðin málaflokk eða þátttakendur. Samfélagsviðurkenningin er hins vegar þvert á málaflokka og opin öllum.
Viðurkenninguna má veita einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélagi. Það gæti t.d. verið eitthvert tiltekið verkefni eða starfsemi, umfjöllun eða annað og gæti bæði hafa vakið athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags.
Viðurkenningin er auglýst í blöðum og á heimasíðu stofnunarinnar og hver sem er getur komið með ábendingu, sbr. val á manni/konu ársins. Jafnframt er óskað sérstaklega eftir ábendingum atvinnuþróunarfélaganna, enda reynum við ávallt að styrkja samstarf við félögin. Dómnefnd velur síðan úr.
Hafa má í huga við ábendinguna hvort viðkomandi hafi:
- gefið jákvæða mynd af landsbyggðinni eða viðkomandi svæði
- aukið virkni íbúa eða fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu
- orðið til þess að fleiri verkefni/ný starfsemi verði til
- dregið að gesti með verkefni eða umfjöllun sinni
Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar.
Viðurkenningin verður listmunur hannaður af lista- eða handverksfólki á því svæði þar sem fundurinn er haldinn. Þannig verður listmunurinn í ár hannaður af Vestmannaeyingi.
Það er von okkar og ósk að atvinnuþróunarfélögin taki þátt í valinu með því að senda okkur ábendingar fyrir 16. maí n.k. Það má gera annað hvort gegnum heimasíðuna okkar, byggdastofnun.is eða með því að senda póst á netfangið sigga@byggdastofnun.is
Nánari upplýsingar gefur Sigríður K. Þorgrímsdóttir, s. 455 5400
|