6. maí 2013 11:41 |
Auglýsing um styrki - Framkvæmdaráð sóknaráætlunar |
Framkvæmdaráð sóknaráætlunar auglýsir styrkir til ferðaþjónustu og matvælaiðnaðar á Vesturlandi (þ.m.t. sjávarútvegur og landbúnaður). Umsóknarfrestur og aðrar upplýsingar eru hér. Umsóknareyðublað er hér. |
| |
24. apríl 2013 13:38 |
Störf á vegum ríkisins á Vesturlandi |
Í dag var sett á vefinn undir "útgáfa" nýr Hagvísir eftir Vífil Karlsson. Helstu niðurstöður eru eftirfarandi: Störf á vegum ríkisins eru færri á Vesturlandi en á höfuðborgarsvæðinu þegar leiðrétt hefur verið fyrir höfðatölu. Þeim fækkaði á Vesturlandi um tæp 30 á milli áranna 2005 og 2013 þrátt fyrir a.m.k. 53,25 ný stöðugildi við nýstofnuð fyrirtæki og stofnanir á vegum ríkisins á Vesturlandi á tímabilinu. Þar má nefna tvo nýja framhaldsskóla, Þjóðgarðinn Snæfellsjökul, Vör í Snæfellsbæ og ný útibú Fiskistofu og Umferðarstofu. Hagvísinn má sjá hér.
|
| |
22. mars 2013 15:53 |
Undirritun samnings um sóknaráætlun landshluta. |
Samningur um sóknaráætlun fyrir Vesturland hefur verið undirritaður. Um er að ræða 45,9 millj. kr. til sjö verkefna. Það var formaður SSV, Gunnar Sigurðsson bæjarfulltrúi á Akranesi sem undirritaði samninginn f.h. stjórnar SSV.
Hér Sóknaráætlun Vesturlands.
Hér er yfirlit frá stjórnarráði um Sóknaráætlanir landshluta. |
| |
8. febrúar 2013 13:35 |
Öndvegisverkefni |
Vaxtarsamningur Vesturlands auglýsir eftir góðum viðskiptahugmyndum.
Stjórn Vaxtarsamnings Vesturlands hefur ákveðið að veita áhugaverðu verkefni(um) allt að 7 mkr. styrk.
Verkefnið þarf að grundvallast á vel unninni viðskiptaáætlun, hafa skírskotun til svæðisins, og nýsköpunar í atvinnulífi þess, ásamt því að skapa störf. Einstaklingar og starfandi fyrirtæki eða samstarf fleiri fyrirtækja geta sótt um styrki.
Ferli umsóknar verður með þeim hætti að skila þarf inn hugmyndalýsingu til stjórnar Vaxtarsamnings Vesturlands fyrir 1. mars 2013. Þar þarf að koma fram á 2–3 blaðsíðum, lýsing á hugmyndinni, gróf áætlun um hversu mörg störf verkefnið geti skapað, hversu mikla fjárfestingu sé um að ræða og áætlaða tímasetningu framkvæmda.
Stjórn Vaxtarsamnings Vesturlands mun velja 2–3 hugmyndir úr umsóknunum og veita þeim 300 þús. kr. styrk til að að ljúka við gerð viðskiptaáætlunar.
Skilafrestur viðskiptaáætlunar verður síðan 1. júní 2013 og niðurstöður kynntar fyrir lok júní.
|
| |
30. janúar 2013 14:27 |
Styrkir til atvinnumála kvenna |
Hefur þú góða viðskiptahugmynd?
Rekur þú fyrirttæki og vilt þróa nýja vöru eða þjónustu?
Vinnumálastofnun/velferðarráðuneyti auglýsir styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2013 lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 18.02.2013. Sjá frekari upplýsingar hér. |
| |
11. janúar 2013 13:27 |
Unga fólkið og Vesturland |
Fréttatilkynning
Í dag var sett á vefinn undir „útgáfa“ nýr Hagvísir Vesturlands. Í þessum Hagvísi er farið yfir íbúaþróun ungs fólks á Vesturlandi. Ungt fólk á aldrinum 20-40 ára, er mikilvægt hverju samfélagi þar sem það fæðir af sér nýja íbúa, er gjarnan vinnusömustu þegnarnir og er að byggja upp sín heimili. Því er almennt talið mjög óheppilegt ef fækkar í þessum aldurshópi.
Í ljós kom að ungum íbúum fækkaði hlutfallslega minnst á Vesturlandi í samanburði við aðra landshluta ef frá eru talin höfuðborgarsvæðið og Suðurnesin.
Á heildina litið fækkaði ungu fólki á sunnanverðu Vesturlandi frá 1991 fram til ársins 1998 en fjölgaði eftir það, sérstaklega frá árinu 2005, en hefur svo aftur fækkað frá bankahruni.
|
meira... |
| |
24. september 2012 11:11 |
Svanni – lánatryggingasjóður kvenna |
Umsóknarfrestur um lánatryggingu haust 2012
Svanni veitir lánatryggingar til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir og er í samstarfi við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu. Sjóðurinn veitir helming ábyrgðar á móti banka. Eingöngu verkefni/fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um tryggingu og gerð er krafa um að í verkefninu felist nýsköpun/nýnæmi að einhverju marki. Einnig er krafa um að líkur séu verulegar á að verkefnið/fyrirtækið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.
|
meira... |
| |
4. september 2012 11:11 |
Breytt umhverfi í samstarfi sveitarfélaga. |
 |
| Fulltrúar aðalfundar ræða samstarf og framtíð sveitarfélaganna á Vesturland. | Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi eru, líkt og sambærileg samtök annars staðar á landinu að fá aukið hlutverk og vægi í samskiptum ríkis og sveitarfélaga. Þegar hafa verið flutt stór verkefni yfir til sveitarfélaganna þar sem landshlutasamtökin eru í lykilhlutverki, s.s. almenningssamgöngur og þjónusta við fatlað fólk. Einnig er það í höndum landshlutasamtakanna að vinna sóknaráætlun fyrir viðkomandi landshluta, vegna Sóknaráætlunar 20/20 á landsvísu. Stefnt er að því að fjármagn sem ríkið hefur veitt til verkefna á landsbyggðinni renni í vaxandi mæli inn í landshlutasamtökin sem sjái um úthlutun þess.
Á aðalfundi SSV sem haldinn var í Stykkishólmi um síðustu helgi, var þetta aukna hlutverk til umræðu ásamt sóknarfærum Vesturlands. Hefðbundið fundaform var brotið upp og fram fór samræða þar sem sátu saman við borð fulltrúar frá ólíkum sveitarfélögum.
|
meira... |
| |
1. september 2012 22:17 |
Strætó á Vestur og Norðurlandi. |
24. ágúst 2012 13:26 |
Átak til atvinnusköpunar |
11. júlí 2012 12:02 |
Sumarlokun |
13. apríl 2012 10:26 |
Aðalfundur Ferðamálasamtaka Íslands í Reykholti |
11. apríl 2012 13:32 |
Atvinnu- og nýsköpunarhelgi á Akranesi. |
14. mars 2012 10:51 |
Stofn og rekstrarstyrkir Menningarráðs |
12. mars 2012 10:36 |
Svanni - lánatryggingasjóður kvenna auglýsir eftir umsóknum |
13. febrúar 2012 11:02 |
Átak til atvinnusköpunar |
23. janúar 2012 10:08 |
Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins |
20. janúar 2012 10:57 |
Hefur þú hugmynd? - Styrkir til atvinnumála kvenna |
23. nóvember 2011 13:25 |
Þéttbýlin í dreifbýli Vesturlands |
10. október 2011 16:54 |
Aðalfundur SSV haldinn 30. september og 1. október |
20. júní 2011 11:29 |
Brúðuheimar Frumkvöðull ársins 2010 |
30. maí 2011 10:52 |
Ráðstefna 8. júní 2011 - Landsbyggð tækifæranna |
10. maí 2011 10:48 |
Landstólpinn - Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar |
18. apríl 2011 13:04 |
Frumkvöðull Vesturlands |
eldri fréttir
|